Leading global provider of advanced equipment
and systems for the food processing industry


Latest News

11.03.2009

Ráðherra ávarpaði aðalfund

Sækja þarf um aðgang að Evrópusambandinu og gera breytingar á skattaumhverfi til að styðja við vöxt útflutningsfyrirtækja

Meira um aðalfundinn (á ensku)

„Ég hef fulla trú á því að íslendingar sigli í gegnum þetta brimrót fyrr en margur grunar og ég held að við komum betur út úr því, betur stödd heldur en að mörg ykkar grunar í dag,” sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í ávarpi sínu á aðalfundi Marel Food Systems hf. sem fram fór þriðjudaginn 10. mars. „Vegna þess að þrátt fyrir allt að þá eru ‚fúndamentin’ í íslensku atvinnulífi traust. Og þá er ég að tala um þá atvinnuvegi sem eru að búa til það sem við þörfnumst mest í dag sem er gjaldeyrir og störf.”

Ráðherra velti síðan fyrir sér hvað stjórnvöld gætu gert til þess að hjálpa fyrirtækjum eins og Marel, sem hann kallaði „eitt af flaggskipum íslensks atvinnulífs”, sem og nýjum sprotafyrirtækjum.

„Það fyrsta sem við þurfum að gera er að búa til stöðugleika í gengisumhverfinu. Ég veit það vel að það þýðir ekkert fyrir mig að koma til fyrirtækja eins og Marels, Össurar, Actavis og CCP og segja ‚keppiði á heimsmarkaði í klofstígvélum krónunnar‘. Það er ekki hægt. Ég lít svo á að krónan hafi lokið hlutverki sínu og að hún hafi átt verulegan þátt í þeirri ógæfu sem að íslenska þjóðin rataði í. Og því segi ég: Það sem að við getum gert er að segja það alveg skýrt að framtíðin felst í því að sækja um aðild að Evrópusambandinu og að taka upp evru.”

Annað sem þyrfti að gera væri að breyta skattaumhverfinu. „Við þurfum að gera þetta með þeim hætti að skilgreindum nýsköpunarfyrirtækjum eins og ykkur verði gert kleift að draga frá skattstofni skilgreindan rannsóknar- og þróunarkostnað og þetta eru ekki bara orð sem að ég er að segja við ykkur. Þetta var partur af atvinnupakka ríkisstjórnarinnar, ein af ellefu tillögum sem að ríkisstjórnin samþykkti frá mér síðastliðinn föstudag eftir að ég hafði átt samtöl meðal annars við forvígismenn í þessu fyrirtæki og núna bíður það okkar að smíða þetta í frumvarpsform.” Kom fram hjá ráðherranum að stefnt væri að því að frumvarp yrði lagt fyrir Alþingi strax eftir kosningar, á vorþingi.

Hvað ný sprotafyrirtæki varðaði nefndi hann að þrátt fyrir mikinn niðurskurð í ríkisfjármálum hefðu fjárútlátin aukist til Tækniþróunarsjóðs. „Ég geri mér grein fyrir því að það er erfitt fyrir þá sem hafa góðar hugmyndir í dag að sækja fjármagn vegna þess að bankarnir eru ekki fyrir hendi og fjárfestarnir eru búnir að tapa sínum peningum eða þora ekki að láta þá í nýjar hugmyndir. Við höfum því búið til nýjan styrkflokk, frumherjastyrki fyrir þá sem eru með frábærar hugmyndir á frumstigi.”

Einnig hefði verið búinn til sérstakur styrktarflokkur, svokallaðir brúarstyrkir, fyrir fyrirtæki sem væru komin lengra áleiðis og þyrftu stuðning við að koma fullbúinni afurð á markað. Með þessum hætti væri ríkisstjórnin að bregðast við þeim breytingum sem urðu þegar kreppan skall á. „Það var eins og það kæmi hnífur og skæri fjötra af sköpunargleði þjóðarinnar. Það hafa aldrei komið fram jafn margar hugmyndir að góðum litlum sprotafyrirtækjum eins og eftir að kreppan skall yfir. Það var eins og eitthvað hefði leysts úr læðingi”, sagði ráðherra.

Þegar horft væri til framtíðar sagðist ráðherra sjá teikn sem gæfu tilefni til bjartsýni. Nefndi hann horfur í sjávarútvegi þar sem þorskstofninn væri á uppleið og norsk-íslenski síldarstofninn í sögulegum hæðum, auk þess sem nýir stofnar væru að koma inn. Þá kæmi lækkun á gengi krónunnar ferðaþjónustunni vel. Þriðja stoðin væri síðan endurnýjanleg orka sem yrði eftirsóttari og dýrari eftir því sem tíminn liði. „Þó að við séum í miðri kreppu og efnahagslægð, þá er ég að koma af fundi þar sem ég var að tala við erlenda fjárfesta sem eru að koma hingað með 100 manna fyrirtæki. Við gerum um það samning, vonandi á næstu 60 dögum. Þeir koma hingað vegna þess að hér er hægt að finna græna orku og það er ein tegund orku sem þeir vilja sem er jarðorka.”

Fjórða stoðin sem ráðherra nefndi voru hátæknifyrirtæki í útflutningi eins og Marel, Össur, Actavis og CCP. „Marel var sprotafyrirtæki þar sem að menn byggðu upp sérþekkingu og dýrmæta reynslu. Og á þeim grunni þá bjuggu þeir til staðlaða vöru sem varð síðan afl fyrirtækisins til skynsamlegrar og hóflegrar útrásar. Útrásar sem var studd af ykkur, fagfjárfestum og einstaklingsfjárfestum, sem létu ekki glepjast af stundargróða, af spilavítispeningunum sem einkenndu hér fjármálalífið á Íslandi. Þið settuð peningana ykkar með þolinmóðum hætti í fyrirtæki eins og Marel. Og niðurstaðan er sú að vegna þeirrar trúar ykkar þá er Marel í dag stærsta fyrirtækið á sínu sviði, heimsleiðtogi, það skarar fram úr öðrum fyrirtækjum á sínu sviði, með 15% markaðshlutdeild þegar að næsta fyrirtækið er með 8%.”

Ráðherra nefndi að Marel starfaði í þeim geira atvinnulífsins sem væri jafnan fljótastur að taka við sér eftir efnahagslegar þrengingar. „Þegar kreppu slotar þá er það sá geiri sem alltaf rís fyrst úr djúpinu. Þannig að það eru svona fyrirtæki sem munu verða fyrst til þess að vaxa og sá vöxtur verður af ýmsum ástæðum brattari heldur en margra annarra fyrirtækja og margra annarra greina.”

Að lokum þakkaði ráðherra fundargestum fyrir þá þolinmæði og seiglu sem þeir hefðu sýnt á erfiðum tímum. „Ísland þarf á fyrirtækjum eins og Marel að halda og líka þolinmóðum, öflugum og framsýnum fjárfestum, og þá meina ég allt frá smæstu einstaklingsfjárfestum upp í hina stærstu lífeyrissjóði.”

PrevNext

Spotlight

One company, one stop
Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry.
Read more

News Archive

Press Contact

Helga Bjork Eiriksdottir
Investor and Public Relations Manager

E-mail:
helga.eiriksdottir@marel.com
Tel.: +354 563 8543

More Information

News Subscription

 


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0