Leading global provider of advanced equipment
and systems for the food processing industry


Latest News

27.11.2009

Umframeftirspurn í hlutafjárútboði Marel

Stjórn Marel Food Systems hf. (Marel) ákvað að taka tilboðum að upphæð 7 milljarðar króna, sem jafngildir 38 milljónum evra, eftir velheppnað hlutafjárútboð á meðal fagfjárfesta sem lauk í dag. Stefnt var að 15% aukningu en tilboð bárust um kaup á alls 111.136.497 nýjum hlutum, sem jafngildir 18% aukningu. Ákvað stjórnin að taka öllum tilboðum, sem komu frá íslenskum lífeyrissjóðum og erlendum og innlendum fagfjárfestum.

Theo Hoen, forstjóri Marel:
„Ég er ánægður og þakklátur fyrir góða þátttöku innlendra og erlendra fjárfesta í hlutafjárútboði Marel. Með útboðinu hefur fjárhagsstaða félagsins styrkst enn frekar. Framundan er tímabil innri vaxtar og uppskeru eftir vel heppnaðan ytri vöxt síðustu ára. Áhersla verður nú lögð á að bæta arðsemi rekstrarins og ná fram allri þeirri rekstrarhagkvæmni sem sameining Marel og Stork býður upp á.“

Gengi í útboðinu var kr. 63 á hlut. Með útboðinu leysir Marel til sín 61,8% af skuldabréfaflokki MARL 06 1 og 17,6% af skuldabréfaflokki MARL 09 1.

Stjórn Marel hefur í kjölfar útboðsins samþykkt að auka hlutafé félagsins um 111.136.497 hluti. Hlutafjárhækkunin nemur 18% og verður heildarhlutafé Marel 727.136.497 hlutir eftir aukninguna. Gjalddagi hinna nýju hluta er miðvikudaginn 2. desember næstkomandi. Marel mun óska eftir því að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland eigi síðar en miðvikudaginn 9. desember næstkomandi.

Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd Marel en tilgangur útboðsins var að styrkja frekar fjárhagsgrunn Marel, draga úr gengisáhættu og lækka fjármögnunarkostnað.

Nánari upplýsingar veita:

  • Sigsteinn Grétarsson, framkvæmdastjórn Marel, í síma 563 8072
  • Steingrímur Helgason, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, í síma 410 7349
  • Arnar Ragnarsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka, í síma 444 6802
  • Halla Hjartardóttir, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka, í síma 440 4532

Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60 umboðsmanna og dreifingaraðila.

PrevNext

Spotlight

One company, one stop
Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry.
Read more

News Archive

Press Contact

Helga Bjork Eiriksdottir
Investor and Public Relations Manager

E-mail:
helga.eiriksdottir@marel.com
Tel.: +354 563 8543

More Information

News Subscription

 


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0